Kaja Kallas: Rússar reyna að hræða Vesturlönd
Utanríkismálastjóri ESB segir nýlega árás á lest nærri Póllandi vera tilraun til að draga úr stuðningi við Úkraínu.
Kaja Kallas, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins, segir að drónaárás Rússa á lest nærri landamærum Póllands og Úkraínu hafi verið augljós tilraun til að hræða vestræn ríki. Árásin átti sér stað skömmu eftir að lest með vestrænum sendifulltrúum fór um sama svæði. Kallas hvetur vestræn ríki til að láta þetta ekki hafa áhrif á stuðning sinn við Úkraínu heldur þvert á móti auka hann.


