Að minnsta kosti einn látinn og 25 saknað eftir að bátur sökk við Grikkland
Björgunaraðgerðir standa yfir undan ströndum Krítar eftir að bátur með tugi flóttafólks um borð fórst í nótt.

Einn er staðfestur látinn og yfir tuttugu manna er saknað eftir að bátur sem flutti flóttafólk sökk undan ströndum Grikklands, nærri eyjunni Gavnos við Krít. Enn sem komið er hefur tekist að bjarga 51 manni úr sjónum en leit stendur enn yfir að þeim sem saknað er.


