Formaður flugvirkja hafnar fullyrðingum forstjóra Icelandair
Óskar Einarsson segir ummæli Boga Nils um að flugvirkjar geti lokað landinu vera varhugaverð, enda séu fleiri flugfélög í rekstri.
Óskar Einarsson, formaður Flugvirkjafélags Íslands, svarar nú fullum hálsi yfirlýsingum Boga Nils Bogasonar, forstjóra Icelandair. Bogi lýsti því yfir í gær að staðan yrði alvarleg ef flugvirkjar færu í verkfall þar sem slík aðgerð gæti nánast lokað landinu. Óskar segir þessi orð vera tilraun til að hræða almenning og flugvirkja sjálfa. Hann bendir á að Icelandair sé ekki eina flugfélagið sem sinni samgöngum til landsins og því sé tala um algjöra lokun rangnefni. Þá hafnar hann einnig fullyrðingum forstjórans um launaþróun stéttarinnar undanfarin ár og segir forsendur Icelandair ekki standast skoðun.



