Lundúnasjúkrahús fjármagnað af velgjörðarmönnum sem fjárfestu í þrælaverslun
St. Barts sjúkrahúsið er meðal margra breskra stofnana sem nutu góðs af fjármagni frá velgjörðarmönnum sem tengdust þrælaverslun á sínum tíma.

St. Barts sjúkrahúsið í Lundúnum er ein margra breskra stofnana þar sem velgjörðarmenn tengdust mansali á ánauðugu fólki frá Afríku. Í aðalsal norðurálmu spítalans, elsta starfandi sjúkrahúss Lundúna, má finna minningartöflur með nöfnum fjölmargra einstaklinga sem ánetjuðust þrælaversluninni. Á meðan þeir gáfu rausnarleg framlög til líknarmála, hagnaðist fjöldi þeirra á fjárfestingum í fyrirtækjum sem byggðu afkomu sína á hagnýtingu þræla.



