Stjórn SÁÁ situr áfram en ráðinn verður nýr forstjóri á Vog
Stjórn SÁÁ ætlar ekki að segja af sér þrátt fyrir vantraust starfsmanna, en hyggst þess í stað ráða nýjan forstjóra og framkvæmdastjóra lækninga.

Framkvæmdastjórn SÁÁ kom saman til fundar í hádeginu. Samkvæmt heimildum verður stjórnin sitjandi áfram þrátt fyrir framkomna vantrauststillögu rúmlega 60 starfsmanna. Þess í stað verður lögð áhersla á að ráða nýjan forstjóra og framkvæmdastjóra lækninga á Vog. Stjórnin telur þessi mannaskipti nauðsynleg til að bregðast við stöðunni og tryggja áframhaldandi starfsemi sjúkrahússins með nýjum áherslum í stjórnun.

