Forsætisráðherra Bretlands aflýsir fundum vegna andláts föður síns
Andy Burnham forsætisráðherra hefur dregið sig tímabundið úr sviðsljósinu eftir að faðir hans lést eftir langvarandi veikindi.

Andy Burnham, forsætisráðherra Bretlands, hefur aflýst öllum opinberum dagskrárliðum á næstunni vegna andláts föður síns. Burnham hefur áður rætt opinberlega um baráttu föður síns við Alzheimer-sjúkdóminn og greint frá því að faðir hans hefði ekki gert sér grein fyrir því að sonur hans hefði verið kjörinn forsætisráðherra vegna vekinnar. Samúðarkveðjur hafa borist Burnham úr öllum áttum í breskum stjórnmálum.



