Leiðtogar Skotlands, Wales og Norður-Írlands sameinast um sjálfsákvörðunarrétt
Leiðtogar þjóðernisflokka í Skotlandi, Wales og á Norður-Írlandi segja að stjórnvöld í Lundúnum hafi engan rétt á að standa í vegi fyrir lýðræðislegum kröfum.

Leiðtogar stærstu þjóðernisflokkanna í Skotlandi (SNP), Wales (Plaid Cymru) og á Norður-Írlandi (Sinn Féin) hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem þeir krefjast aukins sjálfsákvörðunarréttar. Þeir fullyrða að ríkisstjórnin í Lundúnum hafi ekkert siðferðislegt eða lýðræðislegt umboð til að koma í veg fyrir vilja þjóðanna til að ráða sínum málum sjálfar.



