Mikill eldur í Toppstöðinni í Elliðaárdal – Allt tiltækt slökkvilið kallað út
Eldur kom upp í Toppstöðinni í Elliðaárdal síðdegis í dag. Mikinn reyk leggur frá byggingunni og er slökkvilið höfuðborgarsvæðisins mætt á staðinn.

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út á fimmta tímanum í dag vegna mikils elds í Toppstöðinni í Elliðaárdal. Samkvæmt upplýsingum frá vettvangi var allt tiltækt lið sent á staðinn þar sem mikill svartur reykur sást stíga upp frá húsinu. Ekki liggja fyrir upplýsingar um eldsupptök að svo stöddu eða hvort fólk hafi verið inni í byggingunni þegar eldurinn kom upp. Slökkvistarf stendur yfir en starfsmenn slökkviliðsins vinna nú að því að hefta útbreiðslu eldsins í þessu sögufræga húsi.



