Blaðamaður í útlegð handtekinn af ICE-liðum í Bandaríkjunum
Luis Galeano, blaðamaður frá Níkaragva sem hefur verið í útlegð, var handtekinn af bandarískum landamærayfirvöldum í gær.
Luis Galeano, blaðamaður frá Níkaragva sem dvalið hefur í útlegð í Bandaríkjunum frá árinu 2018, var handtekinn af ICE-landamæralögreglunni í gær. Galeano hefur verið ötull gagnrýnandi ríkisstjórnar Daniel Ortega og var sviptur ríkisborgararétti á síðasta ári. Hann á yfir höfði sér brottvísun til Níkaragva.



