Bandaríkjamenn hafna hælisumsóknum hvítra Suður-Afríkubúa
Vonir hvítra Suður-Afríkubúa um landvistarleyfi í Bandaríkjunum hafa dvínað eftir að fjölda umsókna var hafnað nýverið.

Þrátt fyrir loforð Donalds Trumps forseta frá því í febrúar 2025 um að hleypa hvítum Suður-Afríkubúum inn í landið sem flóttamönnum, hafa fjölmargar umsóknir verið dregnar til baka eða þeim hafnað á síðustu mánuðum. Margir umsækjendur eru ringlaðir og vonsviknir yfir þessari vendingu, en Trump hafði áður haldið því fram að þessi hópur stæði frammi fyrir „hvítu þjóðarmorði“ í heimalandi sínu, fullyrðing sem margir telja ranga.


