Snjallgleraugu gætu verið næsta tæknibyltingin
Miklar væntingar eru bundnar við ný gervigreindargleraugu sem þykja líkleg til að breyta tækninotkun fólks á næstu árum.

Gervigreindargleraugu eru nú mjög í deiglunni og telja margir að þau geti orðið að næstu stóru tæknibyltingunni á eftir snjallsímanum. Gleraugun eru búin innbyggðri myndavél og gervigreind sem getur aðstoðað notandann við ýmsa hluti í rauntíma. Þótt margir séu spenntir fyrir tækninni hafa einnig komið upp spurningar varðandi persónuvernd vegna þeirrar staðreyndar að myndavélar eru nú felldar inn í hversdagslegan hlut eins og gleraugu.



