Hildur telur Daða tala gegn eigin sannfæringu
Hildur Sverrisdóttir segir Daða Má Kristófersson hafa virkað hvumpinn á fundi hjá SFF í morgun og telur hann tala í andstöðu við eigin skoðanir.

Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, þótti ekki í sínu venjulega formi á nýlegum fundi Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu (SFF). Hildur Sverrisdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, telur að ráðherrann hafi talað gegn eigin sannfæringu í máli sínu á fundinum.



