Ríkislífeyrir hækkar líklega um 3,9% í apríl næstkomandi
Lífeyrir hækkar samkvæmt reglu sem miðar við launavöxt, verðbólgu eða 2,5%, eftir því hver talan er hæst.

Breskir lífeyrisþegar mega búast við 3,9% hækkun á ríkislífeyri á næsta ári. Hækkunin byggir á „þrefalda lásnum“ (triple lock) sem tryggir að lífeyrir hækki í takt við þann mælikvarða sem er hæstur hverju sinni, en í þetta skiptið er það launavöxtur í landinu.



