Bjartviðri í dag en rigning og rok á morgun
Veðurstofan spáir björtu veðri í dag en búast má við vaxandi suðaustanátt og rigningu seint í kvöld og á morgun.
Víðast hvar verður bjartviðri á landinu í dag, þótt súld geti látið sjá sig norðan- og austanlands. Seint í kvöld og í nótt fer hins vegar að hvessa og rigna, sérstaklega suðvestanlands, og getur vindur náð allt að 18 metrum á sekúndu á morgun með talsverðri rigningu.

