Jón hefur verið landvörður á Hornströndum í 26 sumur
Jón Björnsson landvörður segir óbyggðaupplifun á Hornströndum krefjandi en verðmæta, en hann hefur starfað þar í yfir aldarfjórðung.

Jón Björnsson hefur starfað sem landvörður á Hornströndum í 26 sumur og þekkir svæðið eins og lófann á sér. Hann segir að náttúran þar verndi sig að miklu leyti sjálf þar sem ferðir um svæðið séu krefjandi og krefjist þess að fólk sé vel búið til að takast á við aðstæður á ystu nesjum.
