Eldur barst í lítinn hluta asbestklæðningar Toppstöðvarinnar

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins barðist við eld í Toppstöðinni í Elliðaárdal í kvöld. Eldurinn náði til hluta asbestklæðningar hússins en ekki er talin þörf á frekari aðgerðum vegna asbestmengunar.

RÚV Innlent15. september 2026 kl. 08:56
Eldur barst í lítinn hluta asbestklæðningar Toppstöðvarinnar
AuglýsingatworkSveigjanleg skrifstofurými, fundaraðstaða og samvinnurými.

Eldur kviknaði í Toppstöðinni í Elliðaárdalnum á sjötta tímanum í kvöld. Það tók rúman klukkutíma að ráða að niðurlögum eldsins. Toppstöðin, sem er gömul aflstöð, er einangrað með asbest. Mikill reykur barst frá húsinu og yfir Fossvoginn. Lárus Steindór Björnsson varðstjóri hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu segir að aðeins hafi eldur borist í lítinn hlusta asbestklæðningar hússins og er því er ekki talin þörf á frekari aðgerðum. Slökkviliðið vinnur að málinu með heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur. Toppstöðin var seld í febrúar en til stendur að reisa þar miðstöð útivistar.

Heimild:
Birt á Fréttavakt: 15. september 2026 kl. 08:56
AuglýsingatworkSveigjanleg skrifstofurými, fundaraðstaða og samvinnurými.

Tengdar fréttir