Heimildarmynd um John Snorra opnunarmynd RIFF 2026
Heimildarmynd um tilraun Johns Snorra Sigurjónssonar til að klífa K2 að vetri til verður opnunarmynd RIFF kvikmyndahátíðarinnar í ár.
Heimildarmyndin „Hinsta ferðin á K2“ (The Last First: Winter K2) verður opnunarmynd RIFF á þessu ári. Myndin fjallar um tilraun Johns Snorra og pakistönsku feðganna Muhammad Ali Sadpara og Sajid Sadpara til að klífa K2 að vetri.


