Halli ríkissjóðs eykst um tíu milljarða á milli ára
Afkoma ríkissjóðs versnaði á öðrum ársfjórðungi og nam hallinn 48,3 milljörðum króna, sem er aukning um tíu milljarða frá fyrra ári.
Afkoma hins opinbera versnaði verulega á öðrum ársfjórðungi þessa árs. Samkvæmt nýjum bráðabirgðatölum frá Hagstofu Íslands nam hallinn 48,3 milljörðum króna, sem samsvarar 3,8 prósentum af landsframleiðslu tímabilsins. Til samanburðar nam hallinn 3,0 prósentum á sama tíma í fyrra. Ríkissjóður einn og sér var rekinn með 37,5 milljarða króna halla á fjórðungnum, sem er aukning um tæpa tíu milljarða króna á milli ára.



