Slökkviliðsstjóri kallar eftir betri frágangi á Toppstöðinni
Eftir þriðja brunann í Toppstöðinni leggur slökkviliðsstjóri áherslu á að húsinu sé lokað tryggilega svo óviðkomandi komist ekki þar inn.

Birgir Finnsson, settur slökkviliðsstjóri á höfuðborgarsvæðinu, segir mikilvægt að gengið sé tryggilega frá Toppstöðinni í Elliðaárdal svo vegfarendur eða óviðkomandi eigi ekki greiða leið þangað inn. Slökkviliðið þurfti að sinna útkalli þar í gær vegna elds, en það er í þriðja skiptið sem eldur kemur upp í húsnæðinu. Birgir telur að betri lokun á húsinu sé lykilatriði til að koma í veg fyrir frekari bruna eða tjón í framtíðinni.


