Sá barnaníðinginn fyrir utan heimili sitt
Móðir barns í Múlaborgarmálinu lýsir yfir miklu áfalli eftir að hafa séð dæmdan barnaníðing fyrir utan heimili sitt, aðeins mánuðum eftir sakfellingu hans.

Móðir sem lagði fram kæru vegn kynferðisbrots starfsmanns á leikskólanum Múlaborg segir það hafa verið mikið áfall að sjá manninn fyrir utan heimili sitt nýverið. Maðurinn var fundinn sekur um brot gegn barni fyrir tæpum fimm mánuðum. Hún segir upplifunina rífa upp öll gömul sár og skapa óöryggi á ný.


