Gagnaver gæti ógnað sjaldgæfum dýrategundum
Náttúruverndarsamtök í Essex vara við því að bygging nýs gagnavers muni eyðileggja afar sjaldgæf búsvæði dýra á svæðinu.

Essex Wildlife Trust hefur lýst yfir þungum áhyggjum af fyrirhugaðri byggingu gagnavers sem samtökin telja að muni hafa afdrifaríkar afleiðingar fyrir lífríkið. Bent er á að gagnaverið yrði reist á svæði þar sem finna má tegundir í útrýmingarhættu og sjaldgæf búsvæði þeirra. Samtökin hvetja yfirvöld til að endurskoða áform sín til að vernda náttúruarfleifð héraðsins.



