Ásmundur Helgason skipaður forseti Félagsdóms
Ásmundur Helgason hefur verið skipaður forseti Félagsdóms en hann tekur við embættinu af Ásgerði Ragnarsdóttur sem nýlega var skipuð dómari við Hæstarétt.
Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur nýlega skipað Ásmund Helgason í embætti forseta Félagsdóms. Ásmundur hafði áður gegnt starfi varaforseta dómsins. Samhliða þessu var Björn L. Bergsson skipaður varaforseti og Hólmfríður Gísladóttir dómari. Skipunin er gerð að fenginni tilnefningu frá Hæstarétti, en Ásgerður Ragnarsdóttir hætti sem forseti við skipun í Hæstarétt.



