Húsleit hjá Telenor vegna gruns um mannréttindabrot í Mjanmar
Norsk yfirvöld hafa gert húsleit hjá fjarskiptafyrirtækinu Telenor vegna gruns um að hafa deilt viðkvæmum persónuupplýsingum með herforingjastjórninni í Mjanmar.
Norska lögreglan gerði í dag húsleit í höfuðstöðvum fjarskiptafyrirtækisins Telenor í Noregi. Fyrirtækið er grunað um hlutdeild í glæpum gegn mannkyni í Mjanmar. Málavextir eru þeir að viðskiptavinir Telenor í Mjanmar hafa kært fyrirtækið fyrir að afhenda herforingjastjórninni í landinu viðkvæmar persónuupplýsingar. Telenor seldi starfsemi sína í landinu í fyrra en ásakanirnar lúta að tímanum fyrir söluna. Norsk yfirvöld taka málið mjög alvarlega og segja nauðsynlegt að rannsaka hvort fyrirtækið hafi brotið gegn alþjóðlegum mannréttindaskuldbindingum með samstarfi sínu við herforingjastjórnina.



