HM í frjálsum í fyrsta sinn í Afríku 2029

Heimsmeistaramótið í frjálsíþróttum árið 2029 verður haldið í Naírobí í Kenía, sem er í fyrsta sinn sem mótið fer fram í Afríku.

RÚV Íþróttir15. september 2026 kl. 16:53
HM í frjálsum í fyrsta sinn í Afríku 2029
AuglýsingatworkSveigjanleg skrifstofurými, fundaraðstaða og samvinnurými.

Alþjóða frjálsíþróttasambandið, World Athletics, ákvað á fundi sínum í dag að heimsmeistaramótið í frjálsíþróttum 2029 verði haldið í Naírobí í Kenía. Þetta er í fyrsta sinn sem HM í frjálsum er haldið í Afríku. Það er vel við hæfi að Kenía verði fyrir valinu því þessi gríðarlega hlaupaþjóð hefur unnið næstflest verðlaun allra á heimsmeistaramótunum. Aðeins Bandaríkin hafa fleiri verðlaun; 469 á móti 182 hjá Kenía. Naíróbí hafði betur í baráttu við Lundúnir, Róm og München. München fékk mótið 2031. Næsta heimsmeistaramót fer fram í Peking í Kína næsta sumar.

Heimild:
Birt á Fréttavakt: 15. september 2026 kl. 16:53
AuglýsingatworkSveigjanleg skrifstofurými, fundaraðstaða og samvinnurými.

Tengdar fréttir