Fyrsta vindorkuver Íslands tekið í notkun
Jóhann Páll Jóhannsson ráðherra opnaði nýjan kafla í orkusögu Íslands þegar fyrstu vindmyllurnar í Vaðölduveri voru gangsettar í dag.
„Í dag erum við að opna nýjan kafla í íslenskri orkusögu,“ sagði Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, þegar fjórar vindmyllur voru gangsettar í fyrsta vindorkuveri Íslands, Vaðölduveri, í dag. Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra ræsti vindmyllurnar formlega. Til stendur að fjórtán af þeim 28 vindmyllum sem reisa á við Vaðöldu verið tilbúnar til notkunar nú í september. Þetta markar stór tímamót í nýtingu vindorku á Íslandi og er liður í orkuskiptum þjóðarinnar.


