Snorri Másson: „Ég hef fengið nóg af enskunni“
Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins, vill skylda fyrirtæki til að nota íslensku í auglýsingum og tryggja að hún sé meira áberandi en önnur tungumál.

Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins, hefur fengið nóg af yfirgangi enskunnar á Íslandi. Hann vill skylda fyrirtæki til að hafa íslensku á auglýsingum og skiltum og að íslenski textinn sé meira áberandi en texti á öðrum tungumálum. Hann segir enskuna hafa unnið fullnaðarsigur ef ekki verði gripið í taumana.


