Ekið á hjólreiðamann á Akureyri
Hjólreiðamaður slapp við alvarleg meiðsl þegar ekið var á hann við Gránufélagsgötu á Akureyri síðdegis í dag. Hann afþakkaði flutning á sjúkrahús.
Ekið var á hjólreiðamaður við Gránufélagsgötu á Akureyri á sjötta tímanum í dag. Lögreglan á Norðurlandi eystra staðfestir þetta. Lögregla og sjúkrabíll voru kölluð á vettvang en hjólreiðamaðurinn afþakkaði ferð á sjúkrahús eftir skoðun sjúkraflutningamanna.


