Veruleg lækkun á íslenska hlutabréfamarkaðnum
Úrvalsvísitala Kauphallarinnar hefur lækkað nær samfellt frá byrjun september og hefur markaðurinn gefið verulega eftir síðustu daga.

Lækkunarhrina hefur verið á íslenskum hlutabréfamarkaði síðustu daga og hefur úrvalsvísitala Kauphallarinnar, OMXI15, lækkað nær samfellt frá byrjun september. Fjárfestar fylgjast grannt með þróuninni en markaðurinn virðist leita jafnvægis eftir verulega lækkun.



