Skipulagsyfirvöldum í Hafnarfirði sagt upp störfum
Hafnarfjarðarbær hefur sagt bæði skipulagsfulltrúa og byggingarfulltrúa bæjarins upp störfum vegna víðtækra skipulagsbreytinga hjá sveitarfélaginu.

Vegna skipulagsbreytinga hefur Hafnarfjarðarbær sagt bæði skipulagsfulltrúa og byggingarfulltrúa bæjarins upp störfum. Upplýsingar um þetta bárust DV og hefur bærinn staðfest uppsagnirnar sem lið í breytingum á skipuriti.

