Tvö ensk félög sýna JJ Gabriel áhuga - United vill halda honum
Hinn 15 ára gamli JJ Gabriel, sem þykir eitt mesta efni Manchester United, hefur óskað eftir að yfirgefa félagið.

Mikil óvissa ríkir um framtíð JJ Gabriel hjá Manchester United. Þessi 15 ára gamli knattspyrnumaður, sem hefur verið kallaður eitt mesta efni félagsins í mörg ár, hefur óskað eftir því að fá að fara. Tvö önnur ensk úrvalsdeildarfélög hafa þegar sýnt honum mikinn áhuga eftir að fréttirnar bárust í dag. Forráðamenn Manchester United vonast þó enn til þess að Gabriel skipti um skoðun og verði áfram hjá félaginu, enda binda þeir miklar vonir við hann til framtíðar.


