Rúmenskir bændur og fjárhirðar í átökum við lögreglu
Tugir slösuðust þegar um tvö þúsund bændur mótmæltu framlengingu á banni við útflutningi á búfénaði í Rúmeníu.

Mikil átök brutust út milli bændahópa og lögreglu í Rúmeníu þar sem bændur mótmæla ákvörðun stjórnvalda um að banna útflutning á lifandi fé. Mótmælin hafa notið stuðnings hægriflokka og hafa leitt til fjölda handtaka og meiðsla á báða bóga.



