Tækniskólaklúðrið: Milljónagreiðslur til flokksbróður bæjarstjóra
Hafnarfjarðarbær greiddi fyrrverandi bæjarstjóra Mosfellsbæjar yfir 19 milljónir króna fyrir ráðgjöf vegna lóðakaupa undir Tækniskólann sem síðan urðu að engu.
Nýjar upplýsingar varpa ljósi á miklar greiðslur Hafnarfjarðarbæjar til Haraldar Sverrissonar, fyrrverandi bæjarstjóra í Mosfellsbæ og flokksbróður Rósu Guðbjartsdóttur bæjarstjóra. Haraldur fékk að minnsta kosti 19 milljónir króna fyrir ráðgjöf við lóðakaup undir nýjan Tækniskóla við Flensborgarhöfn, verkefni sem nú er ljóst að verður ekki að veruleika í bænum. Þrátt fyrir að bærinn hafi haldið því fram fyrir ári að samningar væru á lokametrunum, kom í ljós að verulegt vanmat á kostnaði og erfiðar samningaviðræður við lóðareigendur urðu verkefninu að falli. Greiðslurnar til Haraldar voru ekki boðnar út og engin verðkönnun fór fram áður en gengið var til samstarfs við hann.

