Eftirspurn eftir hleðslustöðvum meiri en framboðið segir í nýrri skýrslu
Sala rafbíla fer vaxandi en uppbygging innviða, sérstaklega hleðslustöðva, nær ekki að halda í við fjölgun bíla samkvæmt skýrslu frá ChargePoint.

Þrátt fyrir að dregið hafi úr bjartsýni sumra gagnvart rafbílavæðingu, heldur skiptingin yfir í rafmagn áfram af miklum krafti. Yfir 1,8 milljónir rafbíla hafa selst það sem af er ári, en ný skýrsla bendir til þess að hleðslukerfið sé flöskuháls. Rick Wilmer, forstjóri ChargePoint, segir að þrátt fyrir aukna sölu vanti enn mikið upp á að fjöldi tengla sé fullnægjandi fyrir þann fjölda bíla som nú eru á götunum.



