Samviskubit þegar þú hringir þig inn veikan í vinnu? Þetta gæti verið ástæðan
Allt að helmingur fólks mætir til vinnu þrátt fyrir veikindi. Sérfræðingar segja ástæðurnar flóknar en tengjast vinnustaðamenningu og ábyrgðartilfinningu.

Allt að helmingur fólks mætir til vinnu þrátt fyrir veikindi samkvæmt nýjum gögnum. Sérfræðingar segja ástæðurnar flóknar, en þær tengjast gjarnan vinnuálagi, ótta við að valda samstarfsfólki vonbrigðum eða óöryggi í starfi. Þessi hegðun getur hins vegar leitt til lengri veikinda og minni framleiðni til lengri tíma litið.



