Manchester United sýnir Branthwaite áhuga á ný
Manchester United hefur aftur hafið leit að Jarrad Branthwaite, miðverði Everton, og stefnir á að kaupa hann í janúar. Everton hafnaði tveimur tilboðum í leikmanninn í fyrra.

Manchester United hefur endurvakið áhuga sinn á Jarrad Branthwaite, hinum öfluga miðverði Everton. Samkvæmt fréttum Talksport gæti leikmannakaupin átt sér stað þegar félagaskiptaglugginn opnar í janúar. United reyndi ítrekað að tryggja sér krafta Branthwaite síðasta sumar en þá gátu félögin ekki komist að samkomulagi um kaupverð.



