Bandarísk yfirvöld sögð við það að samþykkja 2,8 milljarða dala vopnasölu til Ísraels
Bandaríkjaþing þarf að samþykkja umfangsmikla vopnasendingu til Ísraelsríkis sem bandarískir miðlar segja 2,8 milljarða dala virði.
Bandaríkjaþing þarf nú að taka afstöðu til umfangsmikillar vopnasölu til Ísraels sem er metin á tæpa þrjá milljarða Bandaríkjadala. Samkvæmt fréttum vestanhafs er um að ræða tugþúsundir sprengna, þar á meðal mjög öflugar tvö þúsund punda sprengjur sem Trump-stjórnin hefur gefið grænt ljós á. Þetta eru einhver stærstu vopnaviðskipti síðari ára og eru þau fjármögnuð með bandarísku skattfé.



