Hækkandi eldsneytisverð veldur reiði og mótmælum víða um heim
Verðhækkanir á eldsneyti hafa hrundið af stað mótmælum og verkföllum í mörgum löndum, meðal annars á Filippseyjum, Sýrlandi og Indónesíu.

Frá Indónesíu til Gvatemala og Sýrlands valda skortur og verðhækkanir á eldsneyti nú mótmælum og rafmagnsleysi. Starfsfólk í almenningssamgöngum lagði niður störf í Quezon City á Filippseyjum á mánudag til að mótmæla háu verði.



