Hækkun bankaskatts gæti skert útlánagetu um 50 milljarða
Fyrirhuguð hækkun á bankaskatti gæti haft veruleg áhrif á íslenska banka. Hagfræðingur telur að útlánageta gæti dregist saman um tugi milljarða króna.

Boðuð hækkun á bankaskatti gæti dregið úr útlánagetu íslenskra banka um allt að 50 milljarða króna, samkvæmt greiningu Intellecon. Gunnar Haraldsson hagfræðingur kynnti þessar niðurstöður á ráðstefnu Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu nýverið. Hann bendir á að aukinn skattbyrði á fjármálafyrirtæki muni óhjákvæmilega hafa áhrif á getu þeirra til að styðja við atvinnulíf og heimili landins með lánveitingum.



