Danir saka rússneskt herskip um ögranir
Danir greindu frá því að rússnesk freigáta hafi skotið ljósskotum að þyrlu danska flughersins í Eystrasalti í gær.

Lars Lokke Rasmussen, utanríkisráðherra Danmerkur, segir það með öllu óásættanlegt að rússneskt herskip hafi skotið ljósskotum að danski herþyrlu. Atvikið er talið hluti af röð ögrana Rússa gagnvart Evrópuþjóðum að undanförnu.


