Harðnandi skattasamkeppni í Sviss
Svissnesku kantónurnar 26 keppa hatrammlega um að laða til sín fyrirtæki og efnaða einstaklinga með lágum sköttum.

Í Sviss hefur skattasamkeppni milli kantóna nánast verið gerð að þjóðaríþrótt. Kantónurnar keppast við að bjóða lægstu skattana til að tryggja að stórfyrirtæki og ríkir borgarar flytji lögheimili sín til þeirra.



