Von der Leyen vill opna á aukaaðild Kanada að ESB
Ursula von der Leyen leggur til að Kanada fái aukaaðild að ESB til að efla samstarf í tækni og orkumálum.
Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, varpaði því fram í dag að Kanada gæti orðið fyrsta ríkið til að fá svokallaða aukaaðild að sambandinu. Hún lagði jafnframt til aukið samstarf við Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, á sviði tækni, varnarmála og orkumála. Von der Leyen sagði í ræðu á Evrópuþinginu í Strassborg að Evrópusambandið og Kanada þyrftu að færa sig nær hvort öðru í ótryggum heimi.



