Ursula von der Leyen: Boðar bann við samfélagsmiðlum fyrir börn
Forseti framkvæmdastjórnar ESB vill banna börnum undir 13 ára aðgang að samfélagsmiðlum og spjallmennum.

Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, flutti árlega ræðu sína um stöðu sambandsins í Strassborg. Hún lagði meðal annars til að börnum undir 13 ára aldri yrði bannaður aðgangur að samfélagsmiðlum, netleikjum og spjallmennum til að vernda andlega heilsu þeirra. Þá boðaði hún einnig nánara samstarf við Kanada, meðal annars með sérstakri aukaaðild fyrir landið.



