Leggja til stórfjölgun jöfnunarsæta – Kraginn fengi 18 þingmenn
Starfshópur leggur til að jöfnunarsætum á Alþingi verði fjölgað úr 9 í 27 til að tryggja jafnt vægi atkvæða.
Þingmönnum Norðausturkjördæmis fækkar um þrjá og þingmönnum Norðvesturkjördæmis um einn ef tillögur starfshóps um endurskoðun kosningakerfisins ná fram að ganga. Á móti fjölgar þingmönnum í Kraganum um fjóra. Starfshópurinn leggur til að jöfnunarsætum verði fjölgað verulega, úr 9 í 27, til að tryggja fullt jafnræði atkvæða á landsvísu.

