Borgarbyggð leggst gegn vindorkuveri við Alviðru
Sveitarstjórn Borgarbyggðar lýsir yfir efasemdum um áform um vindorkuver við Alviðru og leggst gegn því að svæðið fari í nýtingarflokk.
Sveitarstjórn Borgarbyggðar fjallaði nýlega um áform um uppbyggingu vindorkuvers við Alviðru. Í umsögn sveitarstjórnar til faghóps í rammaáætlun er lagst gegn því að Alviðra fari í nýtingarflokk að svo stöddu. Sveitarstjórnin lýsir margvíslegum efasemdum, meðal annars um raunverulegt framlag versins til orkuöryggis og telja að stórar vindmyllur geti haft veruleg og neikvæð áhrif á landslag, náttúru og upplifun fólks á svæðinu.

