Sigga Dögg og Sævar Eyjólfsson skilja
Kynfræðingurinn Sigríður Dögg Arnardóttir og smiðurinn Sævar Eyjólfsson hafa ákveðið að skilja eftir tveggja ára hjónaband.

Kynfræðingurinn Sigríður Dögg Arnardóttir og Sævar Eyjólfsson, smiður og fyrrverandi knattspyrnumaður, hafa ákveðið að fara skilja að skiptum. Parið byrjaði saman árið 2020 en þau höfðu þekkst lengi þar áður. Þau giftu sig með pompi og prakt í New York árið 2022. Nú er ljóst að leiðir þeirra skilja en þau hafa bæði verið áberandi í íslensku þjóðlífi síðustu ár.



