Segist ekki hafa átt möguleika á að hætta við smyglið
Annar skipverjanna í Dettifossmálinu sagði fyrir dómi í morgun að hann hafi óttast afleiðingarnar ef hann myndi neita að smygla amfetamínbasa til landsins.

Fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun fór fram skýrslutaka yfir skipverjum sem ákærðir eru í hinu svokallaða Dettifossmáli. Annar þeirra lýsti því að hann hefði verið undir miklum þrýstingi og óttast um öryggi sitt. Samkvæmt hans sögn var honum enginn kostur gefinn á að falla frá því að flytja efnið frá Þýskalandi til Íslands.

