EFTA-dómstóllinn: Blóðtaka úr hryssum er dýratilraun
EFTA-dómstóllinn hefur úrskurðað að blóðtaka úr fylfullum hryssum skuli teljast sem tilraun á dýrum og falli því undir stranga Evróputilskipun.

Héraðsdómur Suðurlands hefur fengið ráðgefandi álit frá EFTA-dómstólnum varðandi blóðmerahald. Dómstóllinn telur að blóðtaka úr fylfullum hryssum í þeim tilgangi að vinna hormón falli undir skilgreininguna á dýratilraunum. Þetta þýðir að starfsemin lýtur Evróputilskipun sem kveður á um vernd dýra sem notuð eru í vísindaskyni.

