Sádi-Arabar skutu niður dróna frá Hútum nærri Mekka
Sádi-Arabía segist hafa komið í veg fyrir drónaárás frá Jemen suður af hinni helgu borg Mekka, en Hútar neita því að hafa beint sjónum sínum að borginni.

Herlið Sádi-Arabíu segist hafa skotið niður dróna á vegum Húta í Jemen sem stefndi í átt að svæðinu suður af Mekka. Herbandalagið sem berst í Jemen sakar Húta um „fyrirlitlega vinnubrögð“ með því að herja nærri hinu helga svæði múslima. Talsmenn Húta hafa þó vísað því á bug að þeir hafi ætlað að ráðast á borgina sjálfa.



