90 ár frá strandi franska rannsóknaskipsins Pourquoi Pas?

Slyssins var minnst í dag en 40 manns fórust þegar skipið strandaði við Mýrar í ofsaveðri árið 1936.

RÚV16. september 2026 kl. 15:32
90 ár frá strandi franska rannsóknaskipsins Pourquoi Pas?
AuglýsingatworkSveigjanleg skrifstofurými, fundaraðstaða og samvinnurými.

Þess er minnst í dag að 90 ár eru liðin frá því að franska rannsóknaskipið Pourquoi Pas? fórst við Hnokka undan Mýrum. Ofsaveður geisaði á Faxaflóa þann 15. september 1936 og átti skipið enga möguleika. Aðeins einn maður komst lífs af úr áhöfninni en 40 manns fórust, þar á meðal landkönnuðurinn Jean Baptiste Charcot. Franska sendiráðið stóð fyrir minningarathöfn á strandstað í dag.

Heimild:
Birt á Fréttavakt: 16. september 2026 kl. 15:32
AuglýsingatworkSveigjanleg skrifstofurými, fundaraðstaða og samvinnurými.

Tengdar fréttir