Ótímabundið verkfall flugvirkja Icelandair vofir yfir
Ekki hefur verið boðað til nýs fundar í kjaradeilu flugvirkja og gæti verkfall hafist eftir viku ef ekki semst.
Útlit er fyrir að flugvirkjar hjá Icelandair leggi niður störf miðvikudaginn 23. september ef ekki nást samningar fyrir þann tíma. Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari segir stöðuna þunga og að ekki hafi verið tilefni til að boða nýjan fund enn sem komið er. Flugvirkjar krefjast launaleiðréttingar en Icelandair hefur boðið hækkanir í takt við almenna markaðinn.


